Hér verða fréttir og myndir frá íslenskum áhugamönnum um dúfur og tengingar í erlendar fréttir og miðla.
Takki til að gera Like á Facebook forritaður
inn í spjallið!
Formaðurinn okkar "Linda" bað um þennan takka. Þetta var nokkuð flókið mál en á endanum held ég að
þetta virki, endilega að prófa þennan fítus á spjallinu okkar!
Í vinnslu er nýtt viðmót á "kofar"
Nýja viðmótið er sett upp í gagnagrunn og getur sá sem
hefur lykilorð sett inn myndir á auðveldan hátt með því
einfaldlega að draga myndirnar inn á síðunna.
Þetta er fyrsta skrefið í þá átt að hver um sig getur séð um
sína síðu.
fyrstu tvær síðurnar eru komnar í gang sjá
Ragnar eða
Gunnar
Vefurinn var tekin niður tímabundið til þess að laga
öryggismál
Notandi á spjallsíðu hluta vefsins misnotaði aðstöðu
sína til þess að taka út efni sem sett hafði verið inn á vefinn.
Á sama tíma voru unnin skemmdarverk á spjallhlutanum og er unnið
að viðgerð.
Aðalfundur verður 7.janúar 2011
Bréfdúfnafélagið er núna komið á facebook!
sjá síðu
http://www.facebook.com/profile.php?id=100002475545409&sk=wall
7.júni 2011
Nú er hægt að skrá sig í félagið á netinu.
sjá síðu með
upplýsingum hér!
Fyrsti fundur
vetrarins

Sælir félagar
Fyrsti fundur
vetrarins verður haldinn laugardaginn 25 sept kl.14.00.
Fundurinn verður haldinn í reiðhöllinni "Ingólfshvoll" á Selfossi.(Hjá Helga
Bergvins).
Þetta er stór reiðhöll milli Hveragerðis og Selfoss
sést frá aðalvegi. Annar afleggjari eftir að komið er framhjá
Kotstrandarkirkju.
Efni fundarins:
Vetradagskrá rædd,
þ.e. hvað félagsmenn vilja að gera á komandi vetri.
Hvaða leiðir eru bestar til að efla félagið-fjölgun félagsmanna,
styrkja fjárhagsstöðu ofl.Uppskeruhátíðinn
skipulögð.
Staða á úthlutun svæða fyrir kofa, bæði í Mosfellsbæ og Hafnarfirði.
Kv.Villi
Kastljós Viðtal við Vilhelm.
Viðtal tekið við formann Bréfdúfnafélags Íslands um
bréfdúfnasportið.
sjá viðtal hér :
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472209/2010/06/09/2/
16.08.2010
Félagsfundur!
Næsti félagsfundur
Bréfdúfnafélags Íslands er ,,Vorfundurinn,,.
Verður hann haldinn mánudaginn 24 maí, kl. 14-18.
Fundarstaður er Ingólfshöll, Selfossi.
Mjög mikilvægt er allir félagsmenn mæti því á þessum fundi verða lögð drög og teknar margar mikilvægar ákvarðanir um hvernig skipulag og framkvæmd keppna verður háttað, sem og skipting verka milli manna á komandi keppnissumri.
Það skiptir miklu máli að allir taki að sér einhver verkefni í sumar svo vinnan skiptist jafnt á milli manna, svo allir geti notið þess að keppa með fuglana.
Sjáumst allir næsta mánudag.
Kv.Villi
18.05.2010
Bréfdúfnasýning
Bréfdúfnafélag Íslands heldur bréfdúfnasýningu í Húsdýragarðinum
Sunnudaginn 18 apríl frá klukkan 13-16. Á sýningunni verða
bréfdúfur í
eigu félagsmanna Bréfdúfnafélags Íslands og munu þeir taka á
móti sýningargestum og
fræða þá um bréfdúfnasportið á Íslandi og erlendis. Kosti þess
að rækta og keppa
með bréfdúfur á Íslandi og leyfa sýningargestum skoða nokkrar af
bestu bréfdúfum landsins.
Einnig mun dómari frá Hollandi vera á sýningunni og gefa
sýningarfuglunum ræktunardóma.
Sýningarstjóri er Ragnar Sigurjónsson
Bréfdúfnafélag Íslands
