Dúfur eru lifandi áhugamál sem krefst lítils. Dúfur þola vel smá
frost. Dúfuhúsið þarf ekki að vera einangrað. Þær þurfa ekki mikið
pláss en ágætt að reikna með 1 m3 á dúfupar.
Dúfur þola vel vind en
ættu að hafa stað þar sem enginn trekkur er. Þær þurfa alltaf að
hafa aðgang að vatni. Dúfa borðar um 35 gr af dúfufóðri á dag. Hægt
er að gefa þeim úr “automat” eða á hverjum degi. Dúfufóður
inniheldur oft baunir, hveiti, mais, bygg, “vikker” o.fl. Dúfum
finnst gott að hafa (sand) stráð á gólfið eða í útibúrið (stíuna).
Þrif á kofanum getur maður gert þegar maður hefur tíma. Þær þurfa að
hafa aðgang að skeljasandi til að uppfylla þörfina á kalki. Þær ættu
að hafa skál í kassa (varphólfi) til að geta verpt í. Þær þiggja
gjarnan hreiðurefni s.s. strá o.fl. Ef þú vilt para ákveðið dúfupar
er hægt að loka þær í hreiðurkassanum (varphólfinu) í nokkra daga,
og muna að gefa þeim að borða og drekka.
Kvenfuglinn verpir oftast 2
eggjum, sem báðir foreldrar liggja á í um 18 daga. Ungarnir “gogga”
sig sjálfir út úr eggjunum og lifa á dúfumjólk fyrst á eftir. Ungana
þarf að merkja með viðurkenndum fóthringjum. Ungarnir fljúga svo úr
hreiðrinu ca 4-5 vikna gamlir og bjarga sér eftir það sjálfir. Allt
í sambandi við dúfur er frekar ódýrt.
Fræðslugrein: Hvað er það
mikilvægasta fyrir dúfur?
Hvað er það mikilvægasta sem þú gefur
dúfunum þínum? Fóður hugsar þú kannski, jú mikilvægt ekki satt því að
án þess lifa fuglarnir ekki en ekki það mikilvægasta, ha segir þú,
allt í lagi þá hlýtur það að vera vatn, jú líka mjög mikilvægt en
samt ekki mikilvægast, nei nú ertu eitthvað að rugla hugsar þú
kannski en nei ég er með fullu viti.
Og nú skal ég fræða þig lesandi góður um það mikilvægasta sem þú
gefur fuglunum þínum.Þetta er ekkert undralyf eða súper vítamín
heldur GRIT og PIKKSTEINN, ha hvað er það gætu sumir hugsað og er
það einmitt ástæðan fyrir því að ég skrifa þessa grein, það eru
margir sem ekki átta sig á mikilvægi þess að gefa grit og pikkstein.
Byrjum á að útskýra hvað grit er og hvað það gerir fyrir
fuglana.Grit er einskonar grófur skeljasandur sem inniheldur malaðar
ostru skjeljar, rauðstein(redstone) og aðrar steintegundir
(mismunandi eftir tegundum).Það sem þetta gerir fyrir dúfurnar er að
þetta veitir nauðsynleg stein og jarðefni en hjálpar einnig til við
að brjóta niður kornið í sarpinum og melta fóðrið fullkomlega.Já ég
veit segja nú eflaust þeir sem þetta vissu fyrir og eru alltaf með
grit hjá sínum dúfum en þá segi ég á móti, bíddu ná hægur það er
ekki sama hvernig þú gefur fuglunum grit, margir eru með lítinn
leirpott eða skál á gólfinu hjá sér og fylla á hann annað veifið en
það er ekki rétt aðferð því að fuglarnir vilja ekki grit sem hefur
legið í potti eða skál í nokkra daga og safnað ryki eða raka, þess
vegna skal gefa grit á hverjum degi eða annan hvern dag og bara
lítið í einu eða eins og fuglarnir vilja.
Þá er það pikksteinninn, eins og grit þá inniheldur hann heilmörg
stein og jarðefni, í pikksteininum eru leir, sjávargrös,
ostruskjeljar, viðarkol, magnesium, sölt og ýmis náttúruleg efni sem
eru fuglunum mikilvæg.Pikksteinninn þarf að vera aðgengilegur allt
árið.Ýmsar tegundir eru til bæði þar sem pikksteinninn er steyptur í
pott og nægir þá að setja pottinn inn á gólf hjá fuglunum eða
steiptur í blokk en þá þarf að setja hann í dall eða eitthvert ílát.

Það sem að grit og pikksteinn gera er að halda fuglunum heilbrigðum,
veita þeim nauðsynleg efni úr náttúrunni og hjálpa til við niðurbrot
á korni og meltingu.Grit og pikksteinn koma einnig í veg fyrir
kalkskort sem er mjög mikilvægt, sérstaklega fyrir kvenfuglana því
að þær framleiða jú eggin, en einnig fyrir ungana því að þeir vaxa
jú nokkuð hratt og þurfa því mikið kalk fyrir vaxandi bein.Ef ungar
verða fyrir kalkskorti má sjá að bringubeinið getur orðið skakkt eða
bogið en einnig geta komið upp ýmis önnur heilsufars vandamál eða
jafnvel dauði og á það við um fullorðna fugla líka.
Þó að fóður og vatn séu vissuleg lífsnauðsynleg fyrir dúfurnar þá
eru grit og pikksteinn ekki síður mikilvæg því að það er einmitt það
sem heldur dúfunum heilbrigðum og hamingjusömum.
Takk fyrir lesturinn, Högni Ólafsson
Grein um hvernig á að velja út lélega fugla! "grein er á ensku"
Grein um Meulemans "grein er á Ensku!"
Hér er mjög góð grein um janssen bræður, bestu ræktendur á bréfdúfum fyrr og síðar.
Þetta er viðtal sem tekið var við þá þegar
nokkrir af bræðrunum voru enn lifandi, eru reyndar allir látnir
í dag, og margt sem hægt er að læra af henni.
kveðja, Villi